Mercedes-Benz 1413 árgerð 1964 gerður upp

Saga

Saga þessa bíls er að mestu nokkuð vel þekkt þó alltaf megi finna göt í langri sögu eins og gerist og gengur.

Þessi bíll er fluttur nýr til Íslands, pantaður af Ræsi hf fyrir olíufélagið Skeljung og nýskráður 10.september 1964.

Vélsmiðjan Keilir smíðaði á hann olíutank og eftir því sem ég kemst næst var bíllinn lengst af olíubíll hjá Shell í Grindavík, en hvort hann fór þangað strax nýr veit ég ekki alveg fyrir vísti, en þær heimildir skortir.

Samkvæmt bifreiðaskrá kaupir Grindavíkurbær bílinn af Skeljungi sumarið 1977 til að nota hann sem tankbíl fyrir Slökkvilið Grindavíkur. Bíllinn gæti þó hafa komið í þeirra eigu eitthvað fyrr því það var verið að taka upp tölvukerfi Bifreiðaeftirlits Ríkisins þarna 1977 og sumir skráningadaga eru oft ekki alveg réttir sökum þess. Þarna var hann skráður á númerið Ö4372. Við komuna til Grindavíkurslökkviliðsins var vissulega gerð nokkur breyting á tanknum og sett í hann öflug vatnsdæla og drifskaftskeyrt aflúttak til að knýja þann búnað. Grindavíkurbær var ekkert að bruðla fé í málningu á hann strax og hann var fyrst um sinn hafður hvítur og gulur, en merktur slökkviliðinu á hurðum, ásamt því sem að sírena og blikkljós voru sett á toppinn á ökumannshúsinu. Hann var samt tekinn og málaður rauður af slökkvibílalitasiðferði á meðan hann var í eigu Grindavíkurbæjar, en hér fyrir neðan má sjá mynd af honum úr Víkurfréttum frá því í maí 1990 þegar ný slökkvistöð var vígð í Grindavík. Þó myndin sé svarthvít má samt glöggt greina að bíllinn er orðinn rauður, eða allavega ekki hvítur og gulur.

Á heimasíðunni grindavík.is/slökkvilid segir ,,Upp úr 1975 kemur Benz tank bíll með 8000 lítra tank, en mikil þörf var á tankbíl á þessum árum vegna lélegs dreifikerfis vatnsveitunnar. Hann var fenginn frá olíufélaginu Skeljungi að tilstuðlan Elvars Jónssonar. Dæla var sett aftan á hann og var það verk unnið af einum vara slökkviliðsstjóra Jóni Nikolaisyni. Benzinn var seldur 1988 austur á Bakkafjörð."

Samkvæmt mínum heimildum er þetta ártal 1988 ekki rétt farið með, enda sýnir áðurnefnd mynd af bílnum frá 1990 og umskráning bílsins haustið 1991 annað.

Í kjölfar þess að Benzi er sendur frá Grindavík fær svo slökkviliðið þar í bæ annan og yngri tankbíl og þá er þessi bíll tekinn yfir af Brunamálastjórn og síðan sendur og seldur austur í Skeggjastaðahrepp, en Slökkvilið Vopnafjarðar hafði þá fengið bílinn í sína umsjá til að hafa hann sem útkallsbíl á Bakkafirði eins og áður hefur komið fram.

Eins og oftast gerist í svona agnarlitlu samfélagi urðu verkefnin sem betur fer ekki mörg og notkunin að sama skapi ekki mikil. Á þessum árum sem hann er þarna fyrir austan er honum bara ekið örfáa kílómetra, en honum er ekið um 1000 kílómetra á 6 árum og lengsti bíltúrinn í þeirri tölu ökuferðin frá Grindavík til Bakkafjarðar. Það er ljóst að þessi vist þarna fyrir austan, sem og í Grindavík, á nú stæðstan þátt í að þessi bíll er ennþá til, enda ávalt látinn standa inni í skjóli frá veðri og vindum. Eina raunverulega niðursveiflan í efnislegum gæðum er eftir að hann hættir að vera slökkvibíll og fer að standa meira og minna úti í öllum veðrum.

Árið 1997 er tekin ákvörðun um að hætta að nota þennan bíl sem slökkvibíl, enda þá orðinn 33 ára gamall og ansi úrelltur til þeirra þarfa og krafna sem gerðar voru orðnar til slökkvi- og útkallsbíla, enda eins og gefur að skilja upphaflega ekki yfirbyggður sem slíkur. Guðmundur Bergsson, þá starfsmaður Brunamálastjórnar, kaupir bílinn og fer með hann suður í sumarbústað sinn. Guðmundur á bílinn í svolítinn tíma, en selur þá Axeli Oddsyni, Kverngrjóti, Saurbæ í Dölum bílinn, en hann tekur af honum tankinn og útbýr pall á bílinn til að flytja rúllubagga. Bíllinn er tekinn af skrá í júní 2000 og eftir það fer hann á eitthvað flakk sem ekki hefur tekist að rekja því að það gleymdist víst að umskrá bílinn af Skeggjastaðahreppi yfir á Guðmund Bergsson við söluna til hans. Hér kemur því svolítið gat í eigendasögu bílsins.

Í desember 2013 virðist hinsvegar Kristján Örn Þrastarson í Búðardal vera kominn með bílinn í sína eigu, ef marka má ljósmyndir af bílnum á fésbókarsíðu hans. Árið 2016 kaupa hinsvegar Hólmar Örn Ólafsson og Örn Eiríksson félagin hans bílinn af Kristjáni og ætlunin var að taka bílinn og gera hann upp. Breytingar og aðstöðumissir þeirra varð þó til þess að ekkert gat orðið af þessum áformum, en bíllinn fékkst um tíma geymdur í portinu hjá BM Vallá á Breiðhöfðanum, en alltaf þó verið að ýta við því að hann færi þaðan.

Þegar þeir Hólmar og Örn kaupa bílinn er hann ennþá skráður á Skeggjastaðarhrepp, en Hólmar fór í það mál að fá bílinn umskráðann og eftir mikið þref við sveitarfélagið Langanesbyggð, sem í dag er sameina sveitarfélag Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðarhrepps, fannst lausn. Þar á bæ vildu menn í upphafi ekkert af þessu máli vita og ekki koma nálægt þessu á neinn hátt, en enduðu samt á að finna gamlan hreppstjóra Skeggjastaðahrepps sem mundi eftir sölu bílsins og var til í að staðfesta hana og undirrita umskráningarbeiðni fyrir hönd Hreppsins. Hann er því rétt skráður á réttu framleiðslunúmeri þó saga hans í bifreiðaskrá gefi ekki rétta mynd af sölu- og eigendaferli hans.

Í ársbyrjun 2018 berst síðan bílasafni mínu, Einstökum bílum, beiðni um að skoða hvort að ég og mitt bílasafn höfum áhuga á að leysa til okkar og bjarga þessum bíl, en þá stefndi í að hann myndi lenda á eitthverjum hrakhólum ef það yrði ekki gert. Svo fór að ég samþykkti það og keypti bílinn af Hólmari og flutti bílinn til mín í snarhasti. Þegar þetta er ritað er verið að vinna í áætlunum um endurbyggingu hans og ekki ákveðið hvað gert verður við hann eða hverskona yfirbygging verður sett á grind bílsins. Líklegast finnst mér að honum verði breytt í pallbíl, en engin ákvörðun liggur samt fyrir. Bílinn er mjög heillegur, og það er vel þess virði að gera hann upp og varðveita hann.

Ef eitthver veit eitthvað meira má sá hinn sami hafa samband við undirritaðann.

Heimildir og heimildarmenn: Guðmundur Bergsson, Bifreiðaskrá Samgöngustofu, Hólmar Örn Ólafsson, Heimasíða Grindavíkurbæjar og Facebook síða Kristjáns Arnar Þrastarsonar.

Rúnar Sigurjónsson

 

Þessi mynd er úr Þjóðviljanum og tekinn í Kópavogi 1966. Hvort að þetta er Kurzhauber kúlunebbi sjálfur, eða annar sambærilegu bróðir hans treysti ég mér ekki til að staðfesta að svo stöddu, en ljóst er þó að þessi bíll á myndinni lítur alveg nákvæmlega eins út og vinur okkar, sem hér um ræðir, mun hafa gert í upphafi með varahjólið á hægri hlið tanksins.

Myndin er úr Víkurfréttum 10.maí 1990 og tekin í tilefni af vígslu nýrrar slökkvistöðvar í Grindavík.

Mynd síðan í desember 2013, fengin á Facebook síðu Kristjáns Arnar Þrastarsonar í Búðardal.

Áfram á næstu síðu.

eða

Til baka á forsíðu

 

Í upphafi

Yfirbygging

Sprautun

Vélbúnaður

Eitt og annað, innrétting

Samsetning

Saga

Að endingu

Síðast uppfærð 23.12.2016

 

© Einstakir bílar